Færsluflokkur: Bloggar

Vísindakirkjan Vs. South Park

Það sem vísindakirkjan trúir samkvæmt ýktri útgáfu South Park.



mbl.is Tom Cruise er „Kristur“ Vísindakirkjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botnlanginn minn er til sölu!!

Fæst fyrir rétt verð: 1983 árgerð af botnlanga  sem er enn í notkun fæst gegn réttri greiðslu upp á 100 milljarða dollara. Áhugasamir hafið samband.

ATH: Botnlanginn er ennþá í notkun! 


mbl.is Lohan óttaðist að botnlanginn úr sér yrði seldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

PLAYER!!!

    Vá er þessi gaur sorglegur eða hvað? Ég skildi ekki svona gaura sem bera sig fyrir framan óharnaðar unglingsstúlkur og ætlast til þess að stökkvi á þær í einhverju greddukasti. En svo sá ég auglýsingu frá "12-13 ára stúlku" inná einkamál og þá áttaði ég mig á því að það er verið að bjóða uppá þessar kynlífs fantasíur á Íslandi og það oftast í boði Kompás.  Þrátt fyrir að þetta dæmi gæti verið tálbeita  þá er verið að ýta þessu upp að fólki! 

mbl.is Bera sig í vefmyndavél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VG og Sól í Straumi að skjóta sig í fótinn?

    Lítið hefur farið fyrir þeirri málefnalegu umræðu sem Sól í Straumi óskaði eftir núna í kringum áramótin. Það varð reyndar lítið úr henni strax í byrjun þegar þau héldu því fram að einn geisladiskur + DVD diskur með Bó sjálfum væri nóg til þess að kaupa atkvæðis rétt Hafnfirðingi í komandi kosningum. Með því héldu þau fram að Hafnfirðingar væru ekkert nema heimskir sauðir sem blindast af glitrandi áldiskum með tónlist eins af okkar ástkærari bæjarlistarmanni. En raunin er sú að hafnfirðingar eru ekki eins heimskir og Sól í Straumi vilja halda fram og hafa í raun sjálfstæðan vilja þrátt fyrir glitrandi álið og falleg dagatöl.
    Þessi málefnalega umræða Sólar í Straumi virðist snúast um það að skítkasta okkar ástkæru forsetafrú fyrir það að dirfast að minnast á hlýlega á bæði starfsmenn (takk Dorrit) og fyrirtækið sjálft í Kastljósi. Jafnframt er ráðist á virt fjölmiðla fólk fyrir að tala hlutlaust um álverið í Straumsvík (Eva) og viðhalda þar með einhverri hlutleysi í fjölmiðlaumfjöllu, og samdar eru geðveikislegar samsæriskenningar um að það séu tengsl þarna á milli vegna fjölmiðlafulltrúa, þrátt fyrir að heimsókn Dorritar hafi verið fyrir 3 árum (þessi fjölmiðlafulltrúi hlýtur að vera skyggn, að geta séð svona í framtíðina).
    Ekki nóg með það þá fara líka fulltrúar frá S.í.S. líka með lygar í Fjarðarpóstinn, samanber innsend grein frá frá Svövu (eða var það Svala, man ekki eftir nafnið) í öðru tbl. um að umhverfismál Alcan á Íslandi myndu dragast aftur um 20 ár sem er bara ekki rétt, því að fyrir tuttugu árum trúðu menn ekki á mengunarvarnir og héldu að það væri bara fyrir aumingja (eða hér um bil svoleiðis). Hið rétta er að mengunin verður svipuð og mesta lagi fyrir fimm árum svona rétt á meðan reynsla er að komast á nýjan búnað (held ég). En alls ekki 20 ár aftur um tíman.
    Þessi grein og fleira sem bæði VG og S.í.S hafa látið frá sér síðustu vikur sýnir einfaldlega að þeir sem eru mest á móti stækkun vita ekki yfir höfuð hvað það er sem þau eru á móti. Punktur.
    Einnig vil ég minnast á þynningarsvæði. Þynningarsvæði í kringum álver þekkist varla úti í hinum stóra heimi. Þar er þynningarsvæði eitthvað sem maður setur í kringum kjarnorkuver ekki álver. Til dæmis í Essen í Þýskalandi eru fjögur álver í MIÐBÆNUM og byggð allt í kring, hmm merkilegt, ég meina pælið aðeins í því.... takið nokkrar mínútur í það....
    Ef það ætti að setja sömu reglur um þynningarsvæði (um gildi svifryks og koltvíoxíð á fermetra) á helstu umferðaæðar Reykjavíkur og gilda á Straumsvík, þá myndi ég efast um að það væri einhver  byggð á höfuðborgarsvæðinu öllu. En ég hef engar vísindalegar staðreyndir fyrir því, en ef ég skyldi fá þær upp í hendurnar læt ég ykkur vita.
    Margir svokallaðir náttúruverndar sinnar  vilja auka við ferðamanna iðnaðinn frekar heldur en stóriðjuna. Þetta er annað dæmi um það að fólk veit ekki hverju það er að mótmæla. Ferðamannaiðnaðurinn mengar meira en áliðnaður mun nokkurn tíman gera, ég meina vitið þið hvað ein Boeing 757 þota mengar mikið, tékkið á því, það mun sjokka ykkur. Auk þess sem náttúran mun láta á sjá vegna mikillar ágengi.
    Ég verð að taka það fram, bara uppá málefnalegu hliðina, að ég er ekki  alveg hlutlaus í þessum efnum. Sjáið til... ég er starfsmaður á Rannsóknarstofu Alcan, en þar fær maður allar staðreyndir beint í æð og ég er stuðningsmaður Rauða Ljónsins (sjá Blogg vini hér til hliðar). Einnig er ég fylgjandi stækkun þar sem ég trúi því að það mun auka hagsæld í Hafnarfirði.
    Einnig hvet ég Sól í Straumi til að hefja umræðuna á málefnalegan stall (þar með hætta að ljúga að Hafnfirðingum). Einnig hvet ég Pétur í S.í.S að samþykkja eitthvað að þessum greinum sem hafa verið sendar inn á "með stækkun" hluta heimasíðu Sólar í Straumi (ég veit að það hafa verið sendar inn fleiri greinar en sem þú hefur samþykkt Pétur!).
    Og eitt enn sem ég vil nefna við Pétur: Það er enginn Álbræðsla á Íslandi, en það eru þrjú Álver. Álver - Álbræðsla, það er munur þar á.
 
Ég undirritaður heiti hér með að allt sem hér er
skrifað sé satt og rétt svo ég viti til.
 
Jón Gestur Guðmundsson
Hafnfirðingur og
starfsmaður ALCAN á Íslandi
 
SIN CERE

Myndir

Það eru komnar myndir af "grillveislunni" hans Viggó og djammið þar sem ég, Skari, Árni og Victor fórum á kostum inná Vegó. Check it out!! Linkur inná myndirnar hérna í linkunum til hliðar undir mínar síður.

CYA SUCKERS
SIN CERE
Sóða-Nonninn

Sumarfrí

beach_tower.jpg
    VUUUHÚÚÚÚÚ!!! Þá er kallinn kominn í sumarfrí og aðeins tíu dagar þangað til að kallinn fer með Eyjó, Viggó, Beatu, Skara og Nayu til Benidorm. Ég á eftir að gera margt áður en maður tekur sig til og fer út. Til dæmis á ég eftir að:
  1. Sækja um nýtt debetkort.
  2. Kaupa sundbuxur (ekki stutta og þrönga boxera eins og Eyjó).
  3. Pakka niður
  4. Kaupa Gjaldeyri
  5. þrífa bílinn
  6. 0g margt fleira
    Er búinn að hitta flestar sumarstelpurnar og eru þær bara mjög fínar. Fínt að hafa svona fólk til þess að sjá um vinnuna fyrir mann meðan maður situr á ströndinni með Pina Colada og nýtur lífsins.
 
SIN CERE
Sóða-Nonninn 

One Down, Three to Go

Leoncie
    Að mínu mati mættum við losa okkur við fjórar þekktar manneskjur úr íslensku þjóðfélagi. Þessar manneskjur eru þekktar fyrir að vera talent laus has beens sem gera ekkert nema valda okkur Íslendingum skömm.
    Þessar manneskjur eru Geir Ólafs. Ástþór Magnússon, Leoncie og Herbert Guðmundsson. Afhverju?? Hér er afhverju:
  • Leoncie: Hún er algerlega hæfileika laus og of mikill hrokagikkur miðað við hæfileikanna.  Búið. Laus við hana.
  • Geir Ólafsson: Hann er líka algjörlega hæfileikalaus Frank Sinatra eftirherma (hann gerir það ekki einu sinni vel). Kannski ættum við að senda hann í Eurovision, með þeim skilyrðum að hann komi aldrei aftur til Íslands.
  • Herbert Guðmundsson: Hann Hebbi er reyndar skárstur af þeim öllum. Það hefur ekki heyrst í honum lengi og hann er ekki hrokagikkur svo ég viti til, og Það fæst góður ís í ísbúðinni hans. En hann áttar sig ekki á því að hann er hæfileika laus Has Been. Eina ástæðan fyrir því að hann fengi að vera í landinu er ísinn hans. Hvað er annars að frétta af honum.
  • Ástþór Magnússon: Hann fattar það ekki ef maður fær 1% atkvæða í tveimur kosningum í röð, þá verðurðu ekki kosinn heldur 3ja árið... þjóðin vill hann ekki sem forseta. Afhverju kemur hann því ekki í gegnum þessa þykku höfuðkúpu sína? Og hvað varð um Porsche jeppann sem hann lofaði í happdrættinu? Og hvað varð um hann Ástþór?
Og annað fólk sem mætti slaka á í hrokanum (gæti komist á þennan lista minn):
  • Simmi Idol
  • Bubbi Morteins
  • Jónsi Í Svörtum Fötum
  • Magni í Á móti sól
    Jæja þetta er listinn minn yfir fólk sem má reka úr landi. Ég hvet fólk til að skrifa sinn lista í Kommentin.
 
SIN CERE
Sóða-Nonninn 

Fleiri myndir

Geir Ólafsson

Geiri
    Trúið þið þessu um Geir Ólafsson. Hann heldur virkilega að hann sé besti söngvari sem gengið hefur um íslenska fold. Og einng var núna í morgun hálfsíðu auglýsing frá svokölluðum stuðningsmönnum Geir Ólafs (já stuðningsmönnum Hissa) sem hvetur til þess að senda Geir Ólafsson á júróvisíjón á næsta ári. Strax daginn efti. Þannig að það var búið að taka myndina setja upp lay-out-ið og panta stað í blaðinu löngu fyrir keppnina. Pælið í hrokanum á manninum og hans "stuðningsmönnum".
    Ég held að flestar evrópuþjoðirnar hafi skilið það að senda Silvíu hafi verið nokkurs konar brandari, sem ekki allir föttuðu, en ef við sendum Geir á öll evrópa eftir að hata okkur það sem eftir er og Íslandi verður meinað að taka aftur þátt.
    Það sem Geir fattar ekki er að hann er aðeins léleg Frank Sinatra eftirherma og ekkert annað. Hann á bara eftir að niðurlægja þjóðina eins og allar þessar ABBA eftirhermur eru að niðurlægja sína heimaþjóð eins og stendur.
 
 SIN CERE
Sóða-Nonninn 

Júróvisíjon 2006

    Jæja þá er það opinbert. Ísland tapaði.... Í FYRSTA SINN MEÐ STÆL!!! Já loksins loksins tapaði Ísland tapaði með stæl... ekki eins og áður þegar við sendum inn eitthverja ömurlega   lyftutónlist og höldum að við vinnum með því. En í þetta skipti sendum við lag sem gefur skít í allt og við töpum samt en getum samt verið stolt.
Silvía Nótt 
 
Sin Cere
Sóða-Nonninn 

Árshátíð Pumping Iron og fleira

    Já kallinum tókst að fá afrifu í sin á hægri baugfingri og útaf því hefur kallinn ekki nett að blogga. En nú er komið að nýju bloggi með alveg fullt af stafsetningarvillum þar sem baugfingurinn er strappaður við löngutöng og gerir það mér svolítið erfitt fyrir með lyklaborðið.
Puttinn minn
    Hvernig gerðist þetta. Jú þetta gerðist á æfingu ég og Ívar (Seagallinn) ákváðum að fíflast með fyrrgreindum afleiðingum.
    En árshátíð Pumping Iron var um þarsíðustu helgi og hérna eru helstu punktarnir:
  • Við vorum fjórir sem mættum á í Drunken KickBox upphitun.
  • Ívar á kvað að hann skildi drekka í fyrsta skiptið í tvö og varð alveg á skallanum... í bókstaflegri merkingu.
  • Lína trompaðist inná Hverfis og réðst á einhverja stúlkukind... og ég neyddist til að stíga inn á milli.
  • Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að taka mynd niður í brjóstamálið á Tótu
  • Á heimleðinni stoppaði Simmi Idol mig neðst á bankastræti og byrjaði að dissa mig... hann kallaði mig hnakka... helvískur... eins og hann hafi efni á því að dissa annnað fólk... gerir sig reglulega að fífli í sjónvarpinu.
Og svo nokkrar myndir í lokin.
En þangaþ til næst.
 
CYA SUCKERS 
Sin Cere
Sóða-Nonninn 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband