Miðvikudagur, 26. apríl 2006
Jesús tól og öll hans fól.
Ekki spyrja um fyrirsögnin... mér bara datt ekkert annað í hug. Ætti samt að vekja athygli.
Í síðustu bloggfærslu þá ritaði ég að ég hefði ekki fengið svar frá listaháskólanu. En núna get ég glatt ykkur með því að kallinn fékk svar og fer ég í viðtal á morgun klukkan tíu. Samkvæmt mágkonu pabba (en hún vinnur á bókasafninu hjá Listaháskólanum) þá lofar það góðu að komast í viðtal tvö ár í röð. Þannig að núna er það bara að taka helvítis viðtalið með trompi. Þori samt ekki að gera mér of miklar vonir... hef brennt mig á því einu sinni.
Meistarinn hans Jimmy, Austin Goh, var með námskeið í Pumping Iron. Hann tók okkur í próf á föstudeginum og skitum við allir gjörsamlega á okkur og Jimmy var skiljanlega ekki sáttur, en á laugardeginum gekk þetta aðeins betur.
Austin kemur aftur til Íslands í júlí og er áætlunin að taka upp kennslu myndband í Wing Chun Kung Fu þar sem ég, Eyjó og Ívar verðum í stórum hlutverkum.
Árshátíð Pumping Iron er næstu helgi og er ég að hugsa um að kaupa mér ný jakkaföt fyrir það tilefni (og fleiri tilefni í framtíðinni). Er að pæla í því að fá mér meira casual jakkaföt en þessi sem ég á núna. Svona stíf jakkaföt eru bara einfaldlega ekki ég.
Kallinn er einnig að íhuga að prófa nýja (reyndar gömul) bjórtegund á árshátíðinni og ætlar kallinn að skella sér í Guiness-inn að því tilefni. hef aldrei prófað hann áður.
En þetta ætti að nægja bloggskyldunni í bili.
CYA FUCKERS
Sin Cere
Sóða-Nonninn
Athugasemdir
skál fyrir guiness
vito (IP-tala skráð) 27.4.2006 kl. 11:47
Skál *burp*
Jón Gestur Guðmundsson, 27.4.2006 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.